GEFÐU SJÓÐHEITA UPPLIFUN Í JÓLAGJÖF
Icelandic Lava Show í Vík í Mýrdal hefur slegið rækilega í gegn sem einstök upplifun á heimsvísu. Sýningin hefur fengið hreint stórkostlega dóma fyrir að vera allt í senn, fræðandi, persónuleg og magnþrungin og þykir höfða til ungra sem aldna, aðkomufólks sem Íslendinga.
Síðustu ár hefur færst í aukana að gefa fólki upplifanir í jólagjöf. Slíkar gjafir eru bæði afar hentugar fyrir "þá sem eiga allt", henta öllum aldurshópum og er auk þess jólagjöf sem styður við íslenskt hugvit og nýsköpun.